Vöktun og eftirlit á einfaldan hátt

Fáðu boð áður en bilun veldur tjóni. það er okkar mottó. flest óvænt tjón í iðnaði og rekstri mannvirkja gefa á undan sér breytingu í umhverfi og í búnaði sem oftast er ekki verið að vakta eða skoða. . Fjarvöktun.is bíður upp á yfir 80 mismunandi tegundir af skynjurum frá Monnit.com sem geta vaktað allt frá A til Ö í þínu fyrirtæki og mannvirkjum. Sérhæfðir þráðlausir skynjarar fyrir vörukæla og djúpfrysta niður í allt að -200°C og háhita skynjara upp í + 350°C Monnit hitaskynjarar eru góð og örugg lausn sem hitastigsvöktun fyrir vörukæla og frystiskápa. Vottaðir nemar geta sent notendum sjálfvirkar hitastigs skýrslur vikulega eða mánaðarlega í Excel skjali gegnum tölvupóst. ekki er lengur þörf að vinna með tímafreka handvirka skráningu hitastigs með hættu á innsláttar villum í vottunarskýrslu. Með monnit er hitastigsvöktun örugg og sjálvirkt fyrir þinn rekstur.
Úrval rakaskynjara, loftgæða og gasskynjara sem dæmi. CO, CO2 H2S Einnig skynjari fyrir vatnsleka, þrýsting og spennu og straummælar fyrir allar gerðir af vél og rafbúnaði. Skynjarar (nemar) eru þráðlausir og ganga fyrir rafhlöðum sem duga allt upp í 10 ár. Okkar lausnir henta vel fyrir lyfjaiðnað, rannsóknastofur, sjávarútveg, skip, landbúnað, gagnaver, matvælaiðnað, gróðurhús og alla aðra framleiðslu og verksmiðjur. Hafið samband: sala@fjarvoktun.is
Dæmi um einfalda uppsetningu sem getur sparað milljónir króna: Setja upp Monnit þráðlausan hitanema á bakrás (retur) á hitaveitu grind. hitanemi vaktar bakrás. ef retúr hiti fer t.d. yfir 40.C gráður í meira en 60 mín. sendir kerfið út tölvupóst og eða sms á viðeigandi aðila. Mörg fyrirtæki hafa tapað stórum fjárhæðum við það eitt að stjórnloki í hitakerfi eða snjóbræðslu bilar og stendur full opinn vikum eða mánuðum saman. Með okkar búnaði er einfalt og fljótlegt að snjallvæða byggingar, tæki og hússtjórnunar búnað.



Monnit stjórnborð hjá BEWI frauðkassa verksmiðju á Djúpavogi

Monnit útgangs eining (relay) sem virkjar sírenu eða blikkljós í framleiðslu sal

Monnit þrýstinemi á kælivatns lögn.